Hvaða líkamsrækt er heitust árið 2018?

Hvort sem undir er stóll eða dívan þá vita allir að leikfimi er heilsubót. Fjölmargt er í boði fyrir þá sem vilja bæta heilsu sína og taka upp nýjan lífsstíl, allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. En það er ekki nóg að reima á sig skóna og hendast í spandex, það þarf að huga að ýmsu til að ná góðum árangri.
Hrafnhildur Halldórsdóttir, einkaþjálfari í World Class, hefur mikla reynslu af því að taka á móti fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt. „Ég mæli með því að fólk fái sér einkaþjálfara þegar það er að koma í fyrsta sinn í líkamsrækt eða að byrja aftur eftir nokkra fjarveru. Margir eru óöruggir og kunna ekki á lóðin og fara því beint í brennslu og enda jafnvel á því að ofgera sér. Lykilatriðið er að fólk ætli sér ekki of mikið, taki ekki janúarsprengjuna á allt, breyti mataræði, hætti að drekka og reykja og fari að hreyfa sig reglulega. Langskynsamlegast er að taka eitt í einu, byrja á hreyfingu og ná tökum á henni þá fylgir hitt oftast á eftir.“
Líkamsrækt er ekki óháð tískusveiflum frekar en annað, einu sinni var eróbikk vinsælast og svo fóru allir í spinning og í jóga. En hvað skyldi vera aðalmálið þetta árið? Linda Hilmarsdóttir, eigandi líkamsræktarstöðvarinnar Hress í Hafnarfirði, segir að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í líkamsræktarstöðvum landsins, fjölbreytnin sé gífurleg. „Við erum mikið að vinna með HIIT-lotuþjálfun, það er feikivinsælt, tímarnir eru stuttir og henta því fólki sem hefur lítinn tíma en vill vera í góðri þjálfun. Æfingarnar eru í lotum þú gefur þitt besta í 30 sekúndur og hvílir svo í 15 sekúndur, allir eru með púlsmæla og get því fylgst vel með eigin ástandi og gefið í eða dregið úr eftir þörfum.“
Heitt er heitast
Æfingar í upphituðum sal hafa notið mikilla vinsælda og virðist ekkert lát vera á. „Við finnum greinilega fyrir mikilli aðsókn í heitu tímana okkar, en þeir virðast henta þeim sem þurfa að ná sér eftir veikindi eða eru með stoðkerfisvandamál,“ segir Linda. Í sama streng tekur Hrafnhildur og segir að heitir tímar og HIIT-þjálfun sé það sem er í tísku í dag. „Það er svo margt í boði í dag og mér finnst æðislegt að sjá hvað fólk hefur úr miklu að velja. En ég myndi segja að allt sem heitir Hot sé voða inn í dag, Hot jóga, Hot fit, Hot flex. Síðan er fólk mikið farið að fara í HIIT með lóðum og keyrir prógrammið fjórum sinnum í gegn. Það er frábær blanda af þoli og styrk. Crossfitið heldur vinsældum sínum sem og æfingar með ketilbjöllum.“

Síbreytileg matartíska
Þeir sem ætla að breyta um lífsstíl og taka mataræðið í gegn verða oftar en ekki ráðvilltir og vita ekki í hvorn fótinn á að stíga þegar kemur að því að velja rétta matarkúrinn. „Það eru alltaf einhverjar tískusveiflur í matarkúrum, hvort sem það er vegan, LKL, 5:2 eða detox þá er það allt gott og blessað svo lengi sem fólk heldur það út og gerir það að lífsstíl. Allt er samt gott í hófi.
Ég legg mikla áherslu á hreinan mat og gott skipulag, það sem verður fólki oft að falli er að það er á hraðferð gleymir að borða og „grípur í eitthvað í leiðinni“ sem er oftst ekki mjög næringarríkt. Besta leiðin til að viðhalda árangri er að taka eitt skref í einu, taka fyrst út hveiti, næst sykur og svo koll af kolli,“ segir Hrafnhildur.
Þrátt fyrir tískubylgjur í hreyfingu og mataræði gildir að gera það sem hverjum og einum finnst skemmtilegast og réttast fyrir sig – úr nægu er að velja.